Rif

Við erum byrjaðir að reisa þetta hús á Rifi.
Þau bil sem eru nú frátekin eru: Bil: 0101, 0102, 0103 og 0107
Laus eru því enn 0104, 0105, 0106 og 0108

Verð á hverju bili er kr 24.000.0000- Bilin eru seld án virðisauka, hann bætist ekki við. En þinglýsa þarf kvöð á húsið um virðisaukaskattinn, við gerum það og það er innifalið í verði.

Við getum útvegað frá Arion banka lán upp á 75%. Séu aðrar tryggingar til fyrir því sem út af stendur þá erum við reiðubúnir til að lána sjálfir fyrir 20% á sömu kjörum og Arion banki lánar 75%

Áætlað er að verklok verði sept/okt 2024

Nánar um húsið: Bilin eru 100 fermetrar, húsið er 800 fermetrar.  Hægt er að kaupa samliggjandi bil án milliveggja vilji menn stærri einingar.  Húsið/einingin er afgreidd í þessu ástandi: Rafmagnskassi er kominn í einingu, ljós í loft og útihurð.  Rafmagn er komið á bílskúrshurð.  Kalt vatn er komið, klósett lögn er komin.  Ekki vaskur eða klósett.  Húsið er tómt, en tilbúið.  Hægt er að setja  milliloft þar sem til dæmis kaffistofa og klósett geta verið.  Milli loftin geta verið yfir hluta eða öllu húsi, er gert ráð fyrir þeim í upphafi og alltaf er hægt að bæta þeim við eftir á.  Þau þola 350 kg per fermetra. Húsið er afhent með steyptum plönum, 8 metra út frá húsi, beggja vegna á langhlið.

Útveggir eru einangraðir með poly-úritan frauði. 8 cm þykkt.
Loft er einangrað með poly-úritan frauði. 12 cm cm þykkt.
Milliveggir eru einangraðir með steinull. 12 cm þykkt.
Einangrað er undir botnplötu.

Systurhús þessa húss er Ártún 4 í Grundarfirði, ef fólk vill sjá nákvæmlega eins hús, frágang og annað.

Hér fyrir ofan er teikning af Letisundi 3.